07.05.01

Sundrung heimsins.

Á þessum tímum núna er sundrung mannkyns sem aldrei fyrr og það finnst mér afskaplega sorglegt upp á að horfa, vegna þess að eftir því sem fólk er hvert upp á móti hvort öðru og eftir því sem það verður meira og meira, eftir því verður erfiðar að halda uppi og halda áfram að auka orkutíðni jarðarinnar.

Vegna þess að þegar svona stórir hópar og heilu þjóðirnar senda út neikvæða orku-hugsun, þá vinnur hún í raun á móti því sem verið er að gera til þess að koma hlutunum í mildara form á yfirborði jarðar.

Það er enginn hætta á því að þessi framkvæmda áætlun raskist en sem komið er, en þess vegna færi ég þetta í tal, að mig langar til þess að biðja fólk allt að vera nógu duglegt að senda út jákvæðni, þá sem á annað borð vilja á það hlusta og biðja fólk að senda jákvæða hugsun til heims byggðarinnar (eins og við köllum það) í heild sinni og biðja fyrir því að það megi verða friður á jörð.

Því nú sem aldrei fyrr ríður á að megi nást að bæta í friðarboðskap jarðarinnar, þegar sundrungar öflin virðast vera að ná yfirhöndinni í stórum hlutum heimsinns, það kann að vera að það séu enginn ný stríð á yfirborðinu það er rétt, en það er markt annað ófriður en vopnagnýr og það, að það er látlaust verið að hallmæla þjóðum og mönnum og finna þjóðflokkum og mönnum allt til foráttu, það eitt vinnur á móti þeirri jákvæðu uppbyggingu sem búinn er að vera í gangi nú um nokkra hríð.

Hitt vill ég líka benda á, að í þeirri uppbyggingu sem að stendur yfir getur við sagt að nú sé hárleikur, vegna þess að frá og með tungli Ljónsinns sem inn kemur í byrjun Ágúst, þá hefst seinni hárleikur.

Þá hefst uppbygging jarðarinnar í nýrri orku-vídd (fjórðu vídinni), orku sem jörðin hefur ekki haft yfir að ráða seinustu sex þúsund árin og þess vegna afskaplega mikilvægt að þeirri orku fylgi öll sú jarðar heilun (jákvæð hugsun) sem kostur er.

Það verða engar kollsteypur eins og margir vilja vera láta í hinum efniskennda jarðneska heimi (það er að segja í móður jörð sjálfi), þó þar verði mikið umrót og breytingar, kollsteypurnar verða í kringum manninn sjálfan, vegna þess að hann býr þær til, ekki vegna þess að þær séu sendar frá einhverjum.

Vegna þess að þegar maðurinn sendir frá sér neikvæðnina, þá hlýtur þessi neikvæðni að fara í hring og að lokum að hitta manninn fyrir sjálfan sem sendi hanna frá sér, vegna þess að það er enginn dómari, vegna þess að það er enginn sem gefur beinar skipanir, en orku-kerfi mannsins er þannig upp byggt að það stjórnast af görðum sínum.

Því vill ég biðja þá sem þennan pistil sjá og lesa, að hugsa til þess að jákvæð hugsun er allt sem þarf til þess, að það megi verða auðið að stíga fyrsta skrefið fyrir hvern einstakling, inn til meiri friðar fyrir sjálfan sig og þar með meiri friðar í heild sinni á yfirborði jarðar.

Ég vill líka í lokinn á þessu efni, benda fólki á að sú næring sem jákvæðnin gefur því, er á við margar máltíðir í sjálfu sér, ekki það að efnis-líkaminn mun alltaf krefjast síns, en jákvæðnin sem færir meiri ró hún líka minkar þörfina fyrir mat, vegna þess að brennsla hægir á sér vegna þess að fólki líður betur.